Einstakelga fallegt sumarhús að Draumheimum nr. 5 í Hafnarskógi í Hvalfjarðarsveit. Stutt í Borgarnes, golfvöll o.fl. Húsið er skráð 74,4 m2 skv. fasteignaskrá HMS.Húsið er hitað með varmadælu og hitakútur er fyrir heitt vatn. Húsið skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu/borðastof, eldhús opið við stofu, baðherbergi og geymslu. Gólfefni eru flísar og parket. Útgengt er úr stofu út á verönd.
Hellulögð verönd framan við hús.
Húsið stendur á leigulóð og er lóðarleigusamningur til 30 ára frá 2021. Lóðarleiga er um kr. 125 þús. á ári. Á svæðinu er sumarhúsafélag og er árgjald í það kr. 5.000 á ári.